VEFSÍÐA VIKUNNAR !!!
Viktor Óli Guðlaugsson


Ég fékk skammir fyrir að telja niður til jóla svona snemma, þannig að ég tel bara niður í afmæli í staðinn ;o)




If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



Wednesday, August 30, 2006
Nýtt bloggsvæði

Vegna óstöðuleika hérna á þessu bloggi mun ég framvegis blogga frá
 
letihaugur.bloggar.is
 
Ef þið eruð með linka á bloggið mitt þá mættuð þið endilega uppfæra hann.
 
Kv. Gerða

Monday, August 28, 2006
Blogg

Hæ hó
 
Jæja þá er lífið að komast í fastar skorður aftur eftir sumarið.  Matthías byrjaður á leikskólanum eftir frí og krakkarnir byrjuðu í skólanum í síðustu viku.  Laugi byrjaði svo að vinna í morgun eftir mánaðar fæðingarorlof.  Hann ætlar að vinna 50% vinnu í 2 mánuði og eiga mánuð inni þar til síðar.
Annars er hann Matthías veikur núna.......vaknaði í gærmorgun með svaka hita sem lækkaði sáralítið nema rétt á meðan stíllinn í það skiptið var að virka.  Hann lá bara eins og klessa með 40°C hita :o(
Hann er aðeins hressari í dag.....en ennþá með mikinn hita og er illt í hálsinum líka :(
Þetta var ofsalegt svekkelsi fyrir hann, á fimmtudaginn fékk hann boðskort í afmæli hjá honum Pálma vini sínum af leikskólanum og hann var að andast úr spenningi, hann hlakkaði svo til að fara.  Taldi samviskusamlega niður á hverjum degi.  Og jú......afmælið var í gær !!  Fojjj !!!!!!
 
Ætla að láta þetta duga í bili.......læt fylgja með eina mynd af yngsta afkvæminu sem var tekin áðan.....í dag er hann mánaðar gamall :o))
Þessi krútt svipur er spes fyrir ömmu Tótu ;o))  "Amma komdu að heimsækja mig!"
 

Thursday, August 17, 2006
Ég er ekki frá því......

......að maður hafi fengið nettan hnút í magann þegar kom í ljós sl. nótt að Magni væri á botninum ásamt 2 öðrum í ROCKSTAR SUPERNOVA.  En hann hífði rassinn á sér upp með glæsibrag, mjög svo viðeigandi textinn í laginu sem hann söng ;o)
Hann á eftir að komast mikið lengra......Gilby sagði "You're not going home anytime soon" svo þar hafiði það :o))
 
Svo er það gullkorn sonar míns.......hans Matthíasar :o)  Hann er svo mikil perla þessi drengur að það er frábært :o)))
Stundum þegar hann er að horfa á sjónvarpið þá vil hann frekar horfa á tónlistarmyndbönd heldur en teiknimyndir.  Um daginn sitjum við saman, ég að fóðra yngsta grísinn og hann að horfa á sjónvarpið, þegar ég spurði hann hvort við ættum að horfa á tónlist (var komin með nett ógeð á teiknimyndunum)  Jájá, hann var sko til í það.  Svo erum við að horfa á eitthvað lagið........5-6 svakalega flottar skutlur, mjög svo fáklæddar voru að dansa í vídeóinu og syngja með.....og ein lagalínan var "I'm a sexy mama", þá heyrist í honum þar sem hann situr á sófanum........
"Ég myndi ekki vilja eiga svona mömmu!  Jökk !!!"  Svo hristist hann í hrolli !!!!
Ég ætlaði að leka niður úr stólnum úr hlátri !!  Drengurinn er algjör perla :o))))
 
That's all folks :o))  Þar til næst ;o)

Saturday, August 12, 2006
Fíkill ??


Tuesday, August 08, 2006
Langt síðan síðast

Hehehehe já eins og frænka mín benti á í kommentunum á síðustu færslu þá er skoðunin sem ég minntist á síðast lööööngu liðin :o)
Síðan þá hefur slatti gerst, og flest af því vitið þið svosem :o)
Okkur fæddist ss. sonur föstudaginn 28. júlí sl.  Komum heim á mánudeginum eftir það og höfum það bara ljómandi fínt :o))  Þetta er algjör draumaprins, er vær og ljúfur og ekki heyrist hátt í honum nema þegar hann er svangur og þegar það er verið að skipta á honum, honum finnst það ekkert spennandi ;o)
Í gær og í fyrradag var hann mjög mikið á brjósti........ég var nánast farin að baula úr stólnum mínum......en alltaf skal hann sofa alla nóttina !  8-10 tímar á nóttu takk fyrir ;o))
Ég var mjög hress eftir fæðinguna, þurfti engann saumaskap eða neitt svoleiðis vesen þannig að það eina sem ég þarf að ná upp aftur en þrekið.......er ferlega þreytt og máttlaus eitthvað.  Kannski ekki skrítið þegar maður gerir lítið annað þessa dagana en að mjólka handa þessu kríli :o)
 
Við höfum fengið fullt af heimsóknum síðan við komum heim, en án þess að vera neinn dóni vona ég (er ekki að gera uppá milli sko) þá var ofsalega skemmtilegt að fá í heimsókn í dag hana Höllu Katrínu stórfrænku okkar :o)))))  Það var svo gaman að sjá þau saman og sjá hvað hún er orðin stór, hún er sko stærri en Viktor Óli :o))))))  Algjör krútt saman :o))  Reyni að skella mynd af þeim saman á síðuna hans Viktors Óla á morgun.
Solla, Lena og hennar ormar, amma Halla, Vala, Árný, Sandra og Bragi og amma Stína hafa öll kíkt......jú og Gréta frænka líka :o))  Eflaust fleiri en hausinn er ekki alveg í sambandi núna, er sybbin :/
 
Linda Kristín fór heim til sín í dag, var búin að vera hér í mánuð rúmann og gekk bara ljómandi vel :o))  Sunna Dís fór líka til Eyja, henni var boðið í heimsókn til Hönnu og Más og það var ekkert lítill spenningurinn í dömunum hérna í morgun áður en þær löggðu af stað með rútunni suður :o)
 
Tölvan mín fékk yfirhalningu í dag, það læddust í hana hellingur af pöddum og þurfti að hreinsa hana frá grunni !  Ég hef sjaldan séð desktoppinn eins tómlegann og núna hehehe :o))
En það náðist samt að bjarga því sem ég þurfti að bjarga, sem betur fer !!
 
Jæja, þarf að fara að vekja drenginn og gefa honum fyrir nóttina........hann sofnaði alltof snemma !!
 
Bið að heilsa í bili............þar til næst..........takk og bless !!
 

Tuesday, July 25, 2006
Aum bumba......

....eftir átök morgunsins Shocked 
Eins og þið kannski vitið ef þið hafið verið að fylgjast með í vefdagbók bumbunnar, þá var óþekktaranginn hann Jónas Emil eins og amma Halla lagði til að hann yrði kallaður, í þverstöðu, þannig að áframhaldandi mati fyrir gangsetningu var frestað og ég fór í vendingu í morgun.  Þegar hann var skoðaður í sónar í gær, þá lá hann með hausinn á hægri hliðinni á mér og hrygginn niður........í morgun var hann búinn að færa sig heldur betur og lá með hausinn á vinstri hliðinni minni með hrygginn upp !!
Fékk bricanyl í æð til að slaka á leginu og svo var snúið......og það var andstyggð !
En gekk þó.....hausinn á núna að snúa niður en legan er óstöðug þannig að við þurfum að mæta aftur í fyrramálið til að athuga hvort hann snýr ennþá rétt.
Ef hann gerir það þá fáum við líklegast dagsetningu fyrir gangsetningu seinni partinn á vikunni, en ef hann hefur snúið sér aftur þá verður það metið í fyrramálið hvað þeir gera.
Þannig að við fáum áfram inni hjá Sigga og Sillu, frábært að eiga svona góða að......takk fyrir okkur ! Big Smile
Læt heyra frá mér eftir  skoðun morgundagsins , þangað til............takk og bless ! Big Smile Big Smile

Sunday, July 23, 2006
Allt að gerast ??

Það er spurning dagsins ;o)  Í fyrramálið kl. 10 á ég að mæta í skoðun á FSA og vonandi í framhaldinu af því í gangsetningu.  Tengdamamma er á leiðinni norður til að passa skrílinn fyrir okkur á meðan þetta gengur allt saman yfir og ég skal ekki koma aftur heim nema með barnið Í fanginu, ekki innan í mér ;o)
Vona bara það besta :o)
 
Ég er búin að stilla símann minn þannig að ég get sent sms beint í vefdagbókina á bumbusíðunni, þannig að það er um að gera að fylgjast vel með þar hvað er að gerast.
 
Þar til næst............adjö !

Saturday, July 22, 2006
1 vika eftir.....

....og ég er að springa !  Fer líklegast á Akureyri á mánudaginn í mat fyrir gangsetningu, þið sem hafið ekki verið að fylgjast með getið séð allt um ástæðuna í vefdagbókinni á bumbusíðunni.  Er ss. lítið skárri.
Sunna og Kristó komu heim í gær eftir 6 vikna sumarfrí hjá mömmu sinni, það var alveg meiriháttar :o))  Matthías hengdi sig utan á Sunnu eins og hún væri hans eina akkeri í heiminum ;o)
Soldið skondið eitt..........þau fóru ekki að sofa fyrr en rétt um miðnætti, rútan kom ekki fyrr en tæplega 10 og svo vara bara skrall hérna á þeim........allavegana.....Sunna átti það til að lesa fyrir Matthías fyrir svefninn áður en þau fóru í sumarfrí.  Hann hefur ekki beðið mig eða pabba sinn um það síðan, eða nokkurn annan, þetta var bara eitthvað sem þau Sunna áttu saman.  Svo fer hann uppí rúm í gærkvöld en ekki fyrr en hann hafði fengið Sunnu til að lesa fyrir sig :o))
Þetta er greinilega eitthvað sem hann vil eiga með henni einni og það finnst mér frábært :o))
Núna ss. sitja öll börnin mín nema bumban inní stofu og horfa á teiknimyndir, svo til nýskriðin uppúr bælinu ;o)
Linda Kristín, Kristófer Ingi, Sunna Dís, Þorsteinn Vestmann og Matthías Freyr....Þokkalegur hópur þetta :o)))
 
Í dag er Vala frænka árinu eldri, er orðin 35 ára !!!  Til hamingju með daginn frænka :o))
Og í dag verður gullmoli Tobba og Agnesar skírður í Vestmannaeyjum, það verður gaman að sjá hvaða nafn hann hlýtur drengurinn :o))
 
Jæja ég ætla að henda mér aftur í bælið, lárétt staða er víst best eins og ástandið er.........skal geta kíkt á markaðsdag í dag og skoðað.
 
Þar til næst..........hafið það eins gott og þið getið og ef þið skylduð rekast á sólina, segið henni þá að skína líka hérna fyrir norðan, það er andskotann ekkert sumar búið að vera hérna !!

Tuesday, July 18, 2006
Ein spurning........

....og þið verðið að svara..........
Ég er að telja niður í afmæli Önnu Kristínar, það á að birtast undir vefsíðu vikunnar........hvað er þessi teljari að sýna ykkur ?
 
Ástæðan fyrir spurningunni er að mér var sagt að teljarinn birtist ekki, að það kæmi eins og atburðurinn væri þegar liðinn.......ég sagði viðkomandi að það hlyti eitthvað að vera bilað hjá henni því ég sæji þetta rétt.......það gera það greinilega fleiri þannig að tölvan hennar er biluð ;o)
 
Takk fyrir skjót svör dömur mínar :o))

Friday, July 14, 2006
Jamm og jæja.....

Í fyrradag átti minn elskulegi eiginmaður 35 ára afmæli :o))  Eftir 2 daga verður mín elskulega monster in-law 55 ára :o))  Og í dag eigum við hjúin 5 ára brúðkaupsafmæli :o)))
Þar sem ekki er um margt að velja hérna í afmælisgjöfum þá varð kallinn að sætta sig við blómvönd og flösku af eðal koníaki, Camus..........amk í bili ;o)
Og hann fékk líka þesa fínu mynd frá Matthíasi:
 
 
Teiknihæfileikar guttans eru alltaf að koma mér meira og meira á óvart :o))
 
Þegar Laugi var búin að vinna í dag þá lá ég nú bara inní bæli, var ferlega slöpp og afskaplega þreytt, þannig að ég laggði mig.  Þegar ég kom fram þá stökk Matthías á mig með lítinn pakka.........og eina rós ;o)  Ég held nú samt að hann hafi náð að hnupla pakkanum frá pabba sínum ;o)
Í honum var þessi fallegi hringur úr gulli og hvítagulli, og hann PASSAR !!  Þrátt fyrir bólgna bjúgputta........eini hrigurinn sem ég er með eins og er:
 
 
Ofsalega ánægð með hann :o)) 
 
Núna eru Þorsteinn og Linda Kristín einhvers staðar niðri bæ á Húnavöku, hátíð sem verður hérna alla helgina.  Gústi mágur ætlar svo að kíkja á okkur á morgun og vera um helgina.  Veitir ekki af smá afslöppun áður en þeir Sveinn Óskar skella sér til Spánar ! 
 
Læt þetta duga í bili...........þar til næst, verið góð við hvert annað og hafið það eins gott og þið getið :o))

Next Page